Pape með tvö í sigri Víkinga

Pape Mamadou Faye skoraði tvö mörk í dag.
Pape Mamadou Faye skoraði tvö mörk í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Víkingur Ólafsvík hafði betur gegn ÍR, 4:1, í A-deild Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu í Egilshöllinni í dag.

Pape Mamadou Faye skoraði tvö marka Víkings Ólafsvíkur og þeir Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Egill Jónsson skoruðu sitt markið hvor. Hilmar Þór Kárason skoraði mark ÍR-inga þegar hann jafnaði metin í 1:1.

Víkingur Ólafsvík er með 3 stig eftir tvo leiki en ÍR er án stiga eftir tvo leiki.

Markaskorar eru fengnir hjá fótbolti.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert