Ægir Jarl framlengdi við Fjölni

Ægir ásamt Kristjáni Einarssyni, formanni meistaraflokksráðs Fjölnis.
Ægir ásamt Kristjáni Einarssyni, formanni meistaraflokksráðs Fjölnis. Ljósmynd/Fjölnir

Sóknarmaðurinn Ægir Jarl Jónasson hefur framlengt samning við úrvalsdeildarlið Fjölnis í knattspyrnu.

Ægir Jarl, sem er 19 ára gamall, kom við sögu í 14 leikjum Fjölnismanna í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en náði ekki að skora en hann hefur spilað mikið með Grafarvogsliðinu í leikjum þess á undirbúningstímabilinu. Ægir Jarl á að baki níu leiki með U17 ára landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert