Orri í eldlínunni með Vålerenga

Orri Sigurður Ómarsson í landsleik gegn Mexíkó á dögunum.
Orri Sigurður Ómarsson í landsleik gegn Mexíkó á dögunum. AFP

Orri Sigurður Ómarsson, leikmaður bikarmeistara Vals, spilaði í dag 90 mínútur í æfingaleik með norska liðinu Vålerenga þar sem hann dvelur nú við æfingar.

Orri fór með liðinu í æfingaferð til Spánar og spilaði allan leikinn í stöðu miðvarðar gegn Shakhtyor Soligorsk. Norska liðið tapaði leiknum 2:1 eftir að hafa komist yfir.

Orri Sigurður hefur verið fastamaður í Valsliðinu frá því hann kom til þess frá danska liðinu AGF fyrir tímabilið 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert