Sigurmark í uppbótartíma

Alexander Veigar Þórarinsson skoraði eitt af mörkum Grindvíkinga.
Alexander Veigar Þórarinsson skoraði eitt af mörkum Grindvíkinga. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Grindavík vann 3:2 sigur gegn Þrótti Reykjavík í leik liðanna í A-deild Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu en liðin áttust við á Þróttaravelli.

Daði Bergsson og Aron Dagur Hreiðarsson skoruðu mark Þróttara en Andri Rúnar Bjarnason, úr víti, Alexander Veigar Þórarinsson og William Daniels skoruðu mark Grindvíkinga og skoraði William sigurmarkið í uppbótartíma.

Grindavík hefur 10 stig í riðlinum eins og Stjarnan, Breiðablik hefur 5 stig, Þróttur 3, og Fram og Leiknir Fáskrúðsfirði eru án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert