Davíð heim í Árbæinn

Davíð í leik með Fylki gegn FH.
Davíð í leik með Fylki gegn FH. mbl.is/Ómar Óskarsson

Davíð Þór Ásbjörnsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Fylkismenn en hann kemur til Árbæjarliðsins frá Þrótti Reykjavík.

Davíð er uppalinn Fylkismaður en hefur síðustu tvö árin leikið með Þrótti. Hann kom við sögu í sjö leikjum með Þrótti í Pepsi-deildinni í fyrra en hann hefur spilað 94 meistaraflokksleiki með Fylki og hefur í þeim skorað 7 mörk.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir Fylki. Davíð getur spilað margar stöður og það er alltaf gott að fá uppalinn strák aftur heim í Árbæinn,“ segir Þorvaldur Árnason, formaður meistaraflokksráðs Fylkis.

Fylkir féll úr Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en hefur tekið stefnuna á að fara upp undir stjórn Helga Sigurðssonar sem tók við þjálfun Árbæjarliðsins í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert