Byrjunarlið U21 árs landsliðsins

Albert Guðmundsson er í byrjunarlið U21 árs landsliðsins í dag.
Albert Guðmundsson er í byrjunarlið U21 árs landsliðsins í dag. Ljósmynd/twitter

Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Georgíumönnum í vináttuleik í Tbilisi klukkan 15 í dag.

Byrjunarliðið er þannig skipað:

Markvörður:
Sindri Kristinn Ólafsson, Keflavík

Varnarmenn:
Alfons Sampsted, Norrköping
Sindri Scheving, Val
Hans Viktor Guðmundsson. Fjölni
Axel Óskar Andrésson, Bath City

Miðjumenn:
Ásgeir Sigurgeirsson, KA
Júlíus Magnússon, Heerenveen
Viktor Karl Einarsson, AZ Alkmaar
Jón Dagur Þorsteinsson, Fulham

Sóknarmenn:
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA
Albert Guðmundsson, PSV Eindhoven

Allir leikmenn Íslands nema Albert spila í dag sinn fyrsta leik með 21-árs landsliðinu. Tryggvi Hrafn lék hinsvegar sinn fyrsta A-landsleik fyrr á þessu ári.

Liðin eigast aftur við á laugardaginn og á þriðjudaginn næstu viku mæta Íslendingar liði Sádi-Arabíu í vináttuleik á Ítalíu.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert