„Hélt að þetta væri bara aumingjaskapur“

Svava Rós Guðmundsdóttir.
Svava Rós Guðmundsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég er að reyna að ná mér sem best og vonast til að sýna mig áður en næsti landsliðshópur verður valinn,“ sagði Svava Rós Guðmundsdóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki, við Morgunblaðið í gær.

Svava meiddist í ökkla í byrjun janúar sem setti stórt strik í reikninginn hjá henni, bæði varðandi möguleikann á að fara í atvinnumennsku til Svíþjóðar og að vinna sér sæti í EM-hópi Íslands fyrir sumarið.

„Ég missteig mig svo illa að ég sleit smá í liðbandi í ökklanum. Þetta krefst þó ekki aðgerðar og ætti að lagast af sjálfu sér á tveimur mánuðum. Nú eru tveir mánuðir liðnir og ég er byrjuð að æfa á fullu, og planið er að spila næsta leik,“ sagði Svava en Blikar mæta FH í Lengjubikarnum á morgun.

„Þetta er orðið mikið betra en það var. Ég var að kvelja mig til að byrja með því ég vissi ekki hvað þetta var, og fór ekki í myndatöku fyrr en mánuði eftir meiðslin. Ég þurfti því að hvíla mig aðeins lengur og fór svo hægt og rólega af stað,“ sagði Svava.

Sjá allt viðtalið við Svövu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert