Arnór kallaður í landsliðshópinn

Arnór Smárason.
Arnór Smárason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arnór Smárason, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Hammarby, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir vináttuleikinn gegn Írum í Dublin á þriðjudaginn.

Arnór Ingvi Traustason, Emil Hallfreðsson og Gylfi Þór Sigurðsson drógu sig allir út úr hópnum í gær vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir í sigurleiknum gegn Kósóvó á föstudagskvöldið.

Arnór hefur leiki 21 leik með A-landsliðinu og hefur í þeim skorað tvö mörk en hann lék síðast með landsliðinu á China Cup í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert