Frá KA til Keflavíkur

Þeir Frans Elvarsson og Juraj Grizelj verða samherjar hjá Keflavík …
Þeir Frans Elvarsson og Juraj Grizelj verða samherjar hjá Keflavík í sumar. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Keflavík hefur samið við króatíska knattspyrnumanninn Juraj Grizelj og mun hann leika með liðinu á komandi sumri, en hann tók þátt í að koma KA-mönnum upp í efstu deild síðasta sumar.

Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur. Grizelj kom fyrst til landsins árið 2013 og spilaði með Grindavík í tvö sumur, áður en hann gekk til liðs við KA fyrir tveimur árum. Hann skoraði 5 mörk í 21 leik með KA í fyrra, en hefur nú fært sig á Suðurnesin á ný.

Alls á Grizelj að baki 77 leiki í 1. deildinni hér á landi og hefur í þeim skorað 25 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert