Fyrsta landsliðsmark Harðar

Sigurður Þórðarson, Siggi Dúlla, og Hörður Björgvin Magnússon á góðri …
Sigurður Þórðarson, Siggi Dúlla, og Hörður Björgvin Magnússon á góðri stundu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hörður Björgvin Magnússon var nú rétt í þessu að skora sitt fyrsta A-landsliðsmark þegar hann kom Íslandi yfir gegn Írlandi.

Hörður Björgvin skoraði beint úr aukaspyrnu á 21. mínútu, en hann skrúfaði boltann yfir varnarvegginn og í hægra hornið. Hörður er að spila sinn 9. landsleik. Hann spilaði sinn fyrsta leik í nóvember 2014, og var meðal annars í hópnum á EM í sumar en kom þó ekki við sögu.

Leikur Írlands og Íslands er í beinni textalýsingu sem opna má HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert