Kynlíf Íslendinga í þýskum fjölmiðlum

Kolbeinn Sigþórsson og dóttirin Adríana Ósk fagna sigri Íslands á …
Kolbeinn Sigþórsson og dóttirin Adríana Ósk fagna sigri Íslands á Englandi í Nice. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Barnasprengja níu mánuðum eftir íslenska undrið.“ Svona er fyrirsögn í þýsku dagblaði í dag, en greint var frá ansi áhugaverðri staðreynd í gær.

Í ljós kom að það varð nokkurs konar met sett á fæðingardeildum landsins, sléttum níu mánuðum eftir að Ísland vann England í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í Nice síðasta sumar.

Það hefur heldur betur vakið athygli eins og sjá má í skjáskotinu sem handknattleiksþjálfarinn Dagur Sigurðsson birti úr þýsku dagblaði. Vinsælir aðgangar tengdir knattspyrnu á Twitter hafa einnig tekið málið upp eins og sjá má hér neðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert