Atli Sigurjóns hættur hjá Breiðabliki

Atli Sigurjónsson er hættur hjá Breiðabliki.
Atli Sigurjónsson er hættur hjá Breiðabliki. mbl.is/Golli

Knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson hefur komist að samkomulagi við Breiðablik um að rifta samningi sínum við félagið. Hann er því án félags nú þegar skammt er í að Íslandsmótið hefjist.

Atli er 25 ára og kom til Breiðabliks frá KR árið 2015. Hann er uppalinn hjá Þór á Akureyri. Atli lék 49 leiki fyrir Blika og skoraði í þeim átta mörk.

Í tilkynningu á stuðningsmannavef Blika kemur fram að ekki sé ljóst hvað Atli taki sér fyrir hendur en að ljóst sé að mörg félög muni falast eftir kröftum hans.

Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Atla fyrir gott samstarf og góð kynni og óskar honum hins besta í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. Atli vill jafnframt þakka Breiðabliki fyrir sinn tíma hjá félaginu og óskar liðinu alls hins besta í ár og á komandi árum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert