Grindavík mætir KR í úrslitum

KA-maðurinn Halldór Hermann Jónsson umkringdur Grindvíkingum í dag.
KA-maðurinn Halldór Hermann Jónsson umkringdur Grindvíkingum í dag. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Grindavík vann KA í vítaspyrnukeppni í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og reyndust Grindvíkingar sterkari á vítapunktinum. 

Brynjar Ásgeir Guðmundsson brenndi af fyrstu vítaspyrnu Grindavíkinga en þeir skoruðu úr næstu fjórum á meðan KA-menn brenndu af tveim af fjórum vítaspyrnum sínum. 

Grindavík mætir KR í úrslitaleik á Valsvelli næstkomandi mánudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert