KR-ingar í úrslit eftir sigur á FH

Óskar Örn Hauksson fer framhjá Steven Lennon í dag.
Óskar Örn Hauksson fer framhjá Steven Lennon í dag. mbl.is/Árni Sæberg

KR er komið í úrslitaleik Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir 2:1 sigur á FH í Vesturbænum í dag. KR mætir KA eða Grindavík í úrslitaleiknum, en þau mætast kl. 17:15 í dag. 

Óskar Örn Hauksson kom KR yfir í fyrri hálfleik. Hann tók þá skot sem Gunnar Nielsen varði, en Óskar var fyrstur til að átta sig og setti hann frákastið í markið. Skömmu síðar skoraði Kristján Flóki Finnbogason mark með virkilega góðu skoti og var staðan þá 1:1 sem hún var í leikhléi. 

Svo fór að KR skoraði eina markið í seinni hálfleik, það gerði Tobias Thomsen og er KR því, eins og áður segir komið í úrslitaleikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert