Vegna slæmrar veðurspár á höfuðborgarsvæðinu á morgun, mánudag, hafa úrslitaleikir karla og kvenna í Lengjubikarnum verið færðir af Valsvellinum og yfir í Egilshöllina.
Eins hefur tímasetningunum verið breytt og karlaleikur Grindavíkur og KR fer fram á undan, eða kl. 14.00, en hann átti að vera kl. 19.15 um kvöldið.
Úrslitaleik Vals og Breiðablik í kvennaflokki hefur verið seinkað frá 16.00 til 16.30 en leikirnir verða semsagt hvor á eftir öðrum í Egilshöllinni á morgun.