Hrekkti grunlausan samherja (myndskeið)

Guðjón Baldvinsson er sprelligosi.
Guðjón Baldvinsson er sprelligosi. mbl.is/Golli

Stjörnumenn eru í æfingaferð á Spáni áður en Íslandsmótið í knattspyrnu hefst, 30. apríl. Guðjón Baldvinsson sóknarmaður liðsins birti skemmtilegt myndskeið á Twitter, þar sem hann hræðir samherja sinn.

Miðjumaðurinn Eyjólfur Héðinsson sat í mestu makindum og reyndi að ná í lit. Guðjón var staddur á svölum fyrir ofan Eyjólf og sveiflaði gervi-könguló rétt við andlit Eyjólfs.

Eyjólfur hrekkur við þegar hann opnar augun og sér það sem hann heldur að sé alvöru könguló rétt við andlitið á sér.

Myndskeið af atvikinu má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert