Pólskur sóknarmaður til ÍA

Patryk Stefanski.
Patryk Stefanski. Ljósmynd/ÍA

Skagamenn hafa fengið til liðs við sig pólska sóknarmanninn Patryk Stefanski fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar.

Stefanski var til reynslu hjá Akurnesingum í æfingaferð þeirra á Spáni þar sem hann skoraði í leik gegn HK-ingum. Hann er 27 ára gamall og kemur frá pólska C-deildarliðinu Polonia Bytom. Áður lék hann lengst af með Ruch Chorzów en var lánaður þaðan til margra annarra félaga. Hann er annar pólski leikmaðurinn sem gengur til liðs við ÍA því fyrr í vetur samdi félagið við varnarmanninn Robert Mentzel. 

„Við erum sáttir með að bæta inn sóknarmanni áður en tímabilið hefst og auka þar með breiddina í sóknarleik liðsins.  Patryk kemur með mikinn kraft inn í okkar leik – hefur góðan hraða og er jafnfættur og eykur að sjálfsögðu alla samkeppni í sóknarlínu okkar,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, á vef félagsins.

„Þetta eru frábærir strákar og flott umgjörð utan um allt hér á Skaganum, ég hlakka til að stimpla mig inn í íslenska fótboltann,“ segir Stefanski.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert