Holland gæti orðið næsti áfangastaður knattspyrnumannsins Atla Sigurjónssonar sem er án félags eftir að hafa rift samningi sínum við Breiðablik á dögunum.
Atli var til reynslu hjá hollenska B-deildarliðinu Almere City en liðið er í sjöunda sæti deildarinnar og er í baráttu um að komast í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.
„Ég fór út um daginn til Almere City. Mér gekk vel og málin eru í biðstöðu hvað framhaldið varðar. Þess vegna hef ég ekki farið í neinar viðræður við liðin hérna heima,“ sagði Atli við mbl.is í kvöld.
Atli er 25 ára gamall og kom til Breiðabliks frá KR árið 2015 en hann er uppalinn hjá Þór á Akureyri. Atli lék 49 leiki fyrir Blika og skoraði í þeim átta mörk.