Mexíkóska landsliðskonan Stephany Mayor skoraði fyrsta mark Íslandsmótsins í knattspyrnu árið 2017.
Stephany Mayor, sem leikur sitt annað tímabil með Þór/KA, kom Akureyrarliðinu yfir strax á 9. mínútu gegn Val í Boganum á Akureyri en viðureign liðanna hófst þar kl. 17.45.
Markið skoraði hún eftir sendingu frá sambýliskonu sinni, Bianca Sierra, sem einnig leikur með landsliði Mexíkó og spilar fyrsta deildaleik sinn með Þór/KA í dag.
Bein lýsing mbl.is frá leiknum.