FH-ingum spáð titlinum

FH varð Íslandsmeistari í fyrra.
FH varð Íslandsmeistari í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

FH verður Íslandsmeistari karla í knattspyrnu 2017 ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna félaganna tólf í Pepsi-deildinni. Spáin var kynnt nú rétt í þessu í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar.

Víkingi Ólafsvík og nýliðum Grindavíkur er spáð falli úr deildinni, en spána í heild sinni má sjá hér að neðan.

Spáin:

1. FH - 399 stig
2. KR - 379 stig
3. Valur - 375 stig
4. Stjarnan - 320 stig
5. Breiðablik - 295 stig
6. Fjölnir - 228 stig
7. KA - 197 stig
8. Víkingur R. - 192 stig
9. ÍBV - 144 stig
10. ÍA - 110 stig
11. Grindavík - 103 stig
12. Víkingur Ó. - 66 stig

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert