Atli Viðar Björnsson, sóknarmaðurinn reyndi úr FH, verður væntanlega sá eini af 22 markahæstu leikmönnum efstu deildar frá upphafi sem leikur í deildinni árið 2017.
Albert Brynjar Ingason er í 21. sæti listans með 64 mörk. Hann mun leika með Fylkismönnum í 1. deildinni í ár en gæti að sjálfsögðu gengið til liðs við úrvalsdeildarfélag fyrir miðjan maí eða um mitt sumar.
Atli Viðar er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi með 113 mörk, öll fyrir FH, en enginn leikmaður hefur skorað jafnmörg mörk fyrir eitt félag í deildinni.
Hann vantar þrettán mörk til að ná Inga Birni Albertssyni, föður Alberts Brynjars, og átján mörk til að ná markakóngi allra tíma í deildinni, Tryggva Guðmundssyni.
Fimmtán markahæstu menn deildarinnar eru eftirtaldir:
Tryggvi Guðmundsson 131
Ingi Björn Albertsson 126
Atli Viðar Björnsson 113
Guðmundur Steinsson 101
Hermann Gunnarsson 95
Matthías Hallgrímsson 94
Hörður Magnússon 87
Björgólfur Takefusa 83
Ragnar Margeirsson 83
Arnar Gunnlaugsson 82
Steingrímur Jóhannesson 81
Guðmundur Steinarsson 81
Ríkharður Jónsson 78
Pétur Pétursson 72
Steinar Jóhannsson 72
Af núverandi leikmönnum deildarinnar kemur Atli Guðnason úr FH næstur með 62 mörk. Óskar Örn Hauksson úr KR hefur gert 58 mörk, Halldór Orri Björnsson, sem nú er kominn til FH frá Stjörnunni, er með 56 og Garðar Gunnlaugsson úr ÍA hefur skorað 55 mörk í deildinni.
Þessi grein er úr Fótboltinn 2017, sérblaði um Pepsi-deild karla sem fylgdi Morgunblaðinu á föstudaginn en þar er fjallað ítarlega um deildina sem hefst í dag.