Keflavík og Selfoss gerðu 2:2 jafntefli í 1. deild karla í knattspyrnu, Inkasso-deildinni, í kvöld en leikið var á Nettóvellinum í Keflavík.
Keflvíkingar halda því sínu striki með jafntefli í þessari deild. Þeir gerðu jafntefli í 11 leikjum af 22 í fyrra og nú eru komin þrjú í fyrstu fjórum umferðunum.
Selfyssingar gerðu tíu jafntefli í fyrra, komu næstir á eftir Keflvíkingum, svo það þarf ekki að koma á óvart þótt viðureign þessara liða hafi endað á þennan veg.
Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik fóru mörkin að detta inn og það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta markið þegar Ingi Rafn Ingibergsson skoraði á 50. mínútu.
Tveimur mínútum síðar jafnaði Juraj Grizelj fyrir Keflavík. James Mack kom svo Selfossi aftur yfir á 63. mínútu og dugði það mark þeim Selfossmönnum í þrjár mínútur því þá jafnaði Hólmar Örn Rúnarsson fyrir Keflavík. Þar við sat og óhætt að segja sanngjörn úrslit.
Selfoss tyllti sér þar með í toppsætið um stundarsakir með 7 stig eins og Fylkir en Keflavík er með 6 stig eins og HK og Þróttur R.