Hittum ekki á góðan dag

„Við hittum ekki á góðan dag,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir að liðið tapaði 1:0 í Grindavík í Pepsi-deild karla í gærkvöldi.

„Við áttum okkar færi en þeir náðu að skora og svona er fótboltinn bara. Það kom mér í sjálfu sér ekkert á óvart hvernig þeir spiluðu, þeir eru sterkir og við áttum í erfiðleikum,“ sagði þjálfarinn.

Þetta var fyrsta tap Vals en Ólafur sagði að það væri ekkert á stefnuskránni að halda áfram að tapa og nóg er að gera því liðið mætir Stjörnunni í bikarnum á miðvikudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert