Milos refsaði Efete og setti á bekkinn

Arnþór Ari Atlason og Michee Efete í leik Víkings R. …
Arnþór Ari Atlason og Michee Efete í leik Víkings R. og Breiðabliks í síðustu umferð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Milos Milojevic, nýráðinn þjálfari Breiðabliks, er strax farinn að láta til sín taka hjá Kópavogsliðinu fyrir leikinn gegn Víkingi Ó. í 5. umferð Pepsi-deildar karla sem hefst klukkan 18.

Michee Efete, sem er að láni frá enska B-deildarliðinu Norwich, var settur á bekkinn á síðustu stundu þar sem hann mætti of seint til móts við liðið fyrir leikinn samkvæmt því sem fréttamönnum hefur borist til eyrna á leiknum.

Stuðningsmannasíða Blika hafði þegar birt byrjunarliðið á Twitter þar sem sagði að Efete væri í liðinu, en opinber skýrsla KSÍ sagði annað og að öllum líkindum eftir seinagang Efete.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert