Heldur sigurganga Þórs/KA áfram?

Stephany Mayor, Lillý Rut Hlynsdóttir, Lára Einarsdóttir fagna marki á …
Stephany Mayor, Lillý Rut Hlynsdóttir, Lára Einarsdóttir fagna marki á góðri stundu með Þór/KA í sumar. mbl.is/Golli

Heil umferð er á dagskrá í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld og þegar átta umferðum er þegar lokið er Þór/KA enn á toppnum með fullt hús stiga.

Þór/KA heimsækir FH í Hafnarfjörðinn, en forskot norðankvenna á toppnum er sex stig fyrir umferðina. Breiðablik, sem er í öðru sætinu með 18 stig, fer til Grindavíkur og þá eigast Reykjavíkurliðin KR og Valur við.

Íslandsmeistarar Stjörnunnar og ÍBV eru jöfn í þriðja og fjórða sæti með 16 stig, en ÍBV fær nýliða Hauka í heimsókn á meðan Stjarnan tekur á móti Fylki.

Leikir kvöldsins eru sem hér segir:

18.00 FH – Þór/KA
18.00 ÍBV – Haukar
19.15 Grindavík – Breiðablik
19.15 Stjarnan – Fylkir
19.15 KR – Valur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert