Sigríður skaut Eyjakonum í undanúrslit

Eyjakonur fagna.
Eyjakonur fagna. mbl.is/Golli

Landsliðskonan Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði sigurmark ÍBV gegn Haukum í átta liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu í dag. Lokatölur voru 1:0 og kom markið á 77. mínútu. 

Flestir bjuggust við öruggum sigri ÍBV gegn Haukum sem hafa aðeins fengið eitt stig í Pepsi-deildinni í sumar. Sú varð ekki raunin og hefðu Haukar getað unnið leikinn með smá heppni. Eyjakonur fóru alla leið í úrslitaleikinn í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert