Stórleikur í Garðabæ í kvöld

Agla María Albertsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir eigast við í …
Agla María Albertsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir eigast við í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Það er sannkallaður stórleikur í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Borgunarbikarnum, í Garðabæ í kvöld þar sem ósigrað lið Þórs/KA mætir ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar.

Þessi lið áttust við í Pepsi-deildinni fyrir skömmu þar sem Þór/KA vann 3:1-sigur. Liðið hefur unnið alla sína leiki það sem af er sumri og sló meðal annars ríkjandi bikarmeistara Breiðabliks úr keppni í 16-liða úrslitunum.

Stjarnan vann 5:1-sigur á KR í 16-liða úrslitunum og er í þriðja sæti deildarinnar, en alla leiki kvöldsins í bikarkeppninni má sjá hér að neðan.

17.30 ÍBV – Haukar
18.00 Stjarnan – Þór/KA
19.15 Grindavík – Tindastóll
19.15 Valur – HK/Víkingur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert