Tímamótasigur hjá Willum

Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga, gat andað léttar eftir 3:2 sigur hans manna gegn KA á Akureyrarvelli í gær í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, enda fyrsti sigur liðsins í sex leikjum. En hann hafði aðra ástæðu til að fagna.

Þetta var 100. sigurleikur Willums sem þjálfara í efstu deild á ferlinum en leikurinn var sá 223. þar sem hann stýrir liði í deildinni. Willum var þar fyrst með Þrótt árið 1998, þá KR 2002 til 2004, Val 2005 til 2009, Keflavík 2010 og 2011 og svo KR frá því í lok júní 2016.

Hann er kominn með 100 sigurleiki, 53 jafntefli og 70 töp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert