Knattspyrnumaðurinn reyndi Tryggvi Guðmundsson er genginn í raðir Kórdrengja í 4. deildinni. Hinn 42 ára gamli Tryggvi hefur verið án félags í sumar, en hann mun hjálpa Kórdrengjum sem stefna upp úr 4. deildinni. Þetta staðfesti hann við fotbolti.net.
„Ég ákvað að fara í Kórdrengina af því að þeir eiga góða möguleika á sæti í úrslitakeppninni eftir mikilvægan sigur í gær. Það eru margir góðir leikmenn í hópnum þarna,“ sagði Tryggvi við fotbolti.net.
Tryggvi er markahæsti leikmaður efstu deildar á Íslandi frá upphafi. Kórdrengir eru með fjögurra stiga forskot á Kríu í A-riðli 4. deildar.