Frá Persaflóa í Stjörnuna

Stjörnukonur hafa fengið liðsauka.
Stjörnukonur hafa fengið liðsauka. mbl.is/Golli

Íslandsmeistarar Stjörnunnar í knattspyrnu kvenna hafa fengið liðsauka úr óvenjulegri átt en landsliðskona frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum er gengin til liðs við Garðabæjarliðið og er komin með leikheimild.

Imen Trodi er 28 ára gömul og hefur leikið sem framherji í deildakeppninni í Norður-Ameríku með kanadíska liðinu Quebec City og var m.a. valin í úrvalslið W-deildarinnar árið 2012 en það var þá næstefsta deildin í Bandaríkjunum og Kanada.

Hún var m.a. í liði Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem sigraði Íran í úrslitaleiknum í meistarakeppni Vestur-Asíu árið 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert