Kristinn gæti verið á heimleið á ný

Kristinn Jónsson í búningi Sogndal.
Kristinn Jónsson í búningi Sogndal. Ljósmynd/sogndalfotball.no

Kristinn Jónsson, vinstri bakvörður Sogndal í Noregi, gæti verið á leið aftur til landsins eftir að hafa fengið fá tækifæri með liðinu á leiktíðinni.

Miðillinn 433.is greinir frá þessu í dag, en Kristinn lék síðast hér á landi sumarið 2015 með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Þaðan fór hann til Sarpsborg 2008 en að lokum til Sogndal í vetur.

Kristinn staðfestir að hann sé að skoða sín mál og hafi verið í viðræðum við nokkur lið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert