Skotinn Steven Lennon hafði engan áhuga á að fara í fara í framlengingu gegn Leikni Reykjavík þegar liðin áttust við í undanúrslitum Borgunarbikarkeppninnar í knattspyrnu í Kaplakrika á laugardaginn.
Það voru allir farnir að búa sig undir hálftíma meiri fótbolta og jafnvel vítaspyrnukeppni þegar Lennon spólaði sig í gegnum vörn Leiknismanna, lék á tvo varnarmenn og hamraði boltanum í netið.
Markið kom á annarri mínútu í uppbótartíma og fögnuður FH-inga var mikill þegar Þóroddur Hjaltalín flautaði til leiksloka, mínútu eftir markið, en Leiknismenn, sem svo sannarlega stóðu uppi í hárinu á Íslandsmeisturunum, sátu eftir með sárt ennið og enduðu bikarævintýri sitt þar sem þeir skráðu nýjan kafla í sögu félagsins.
Það verða því FH og ÍBV sem leika til úrslita um bikarinn í ár á Laugardalsvellinum hinn 12. ágúst en þau hafa einu sinni mæst áður í bikarúrslitum. Það var á Melavellinum sáluga á ísköldum sunnudegi 12. nóvember 1972 þar sem Eyjamenn fögnuðu 2:0-sigri.
Ég held að flestir hafi búið sig undir nokkuð öruggan og þægilegan sigur FH-inga gegn Inkasso-liðinu og ekki síst þar sem stór skörð voru höggvin í lið Breiðhyltinga. En Leiknismenn gáfu FH-ingum svo sannarlega leik og Íslandsmeistararnir geta þakkað Skotanum frábæra Steven Lennon að þeir eru komnir í bikarúrslit í sjötta sinn og eiga möguleika á að vinna bikarmeistaratitilinn í þriðja sinn og í fyrsta skipti í sjö ár.
Sjá greinina í heild í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.