Umdeilt mark á Akureyri

KA-menn voru afar ósáttir, svo ekki sé fastar að orðið kveðið, þegar Stjörnumenn jöfnuðu 1:1 á Akureyrarvelli í kvöld. Srdjan Rajkovic varði skalla frá Guðjóni Baldvinssyni en hélt ekki boltanum, Guðjón, varnarmaðurinn Callum Williams og Jósef Kristinn Jósefsson þustu að markinu og sá síðastnefndi skoraði.

KA-menn vildu meina að brotið hefði verið á Rajkovic, en hann lá sem skotinn væri í markinu eftir klafs á marklínunni. Erlendur Eiríksson dómari sá ekkert athugavert og dæmdi mark. Hér má sjá myndasyrpu af atvikinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert