Miðasala á leikinn gegn Úkraínu á morgun

Ísland vann frækinn sigur á Króatíu í síðasta leik karlalandsliðsins …
Ísland vann frækinn sigur á Króatíu í síðasta leik karlalandsliðsins á Laugardalsvelli. mbl.is/Golli

Í hádeginu á morgun hefst miðasala á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, en leikurinn fer fram þriðjudaginn 5. september klukkan 18.45 á Laugardalsvelli.

Miðasala fer fram á midi.is og hefst klukkan 12.00 á morgun, 16. ágúst, en samkvæmt heimasíðu KSÍ er mest hægt að kaupa fjóra miða á hverja kennitölu. Nánari upplýsingar um miðasölu má sjá HÉR.

Ísland og Króatía eru jöfn í efstu tveimur sætum undanriðilsins með 13 stig eftir sex leiki. Úkraína og Tyrkland koma þar á eftir, bæði með 11 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert