Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer þriðjudaginn 5. september næstkomandi á Laugardalsvelli.
Miðasala á leikinn hófst á midi.is núna klukkan 12 á hádegi og var uppselt á leikinn á skömmum tíma.
Ísland og Króatía eru jöfn í efstu tveimur sætum undanriðilsins með 13 stig eftir sex leiki. Úkraína og Tyrkland koma þar á eftir, bæði með 11 stig.