Gunnleifur framlengir við Breiðablik

Gunnleifur Gunnleifsson verður áfram hjá Breiðabliki.
Gunnleifur Gunnleifsson verður áfram hjá Breiðabliki. Hanna Andrésdóttir

Gunnleifur Gunnleifsson, markmaður knattspyrnuliðs Breiðabliks, hefur framlengt samning sinn við félagið og mun hann leika með því næsta sumar. Gunnleifur er 42 ára gamall en hvergi nærri hættur. 

Markmaðurinn hefur verið í herbúðum Breiðabliks síðan hann kom til félagsins frá FH árið 2013 og hefur hann leikið 103 leiki með liðinu á þeim tíma. 

Gunnleifur hefur leikið 26 A-landsleiki fyrir Ísland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert