Jafnt hjá Magna og Njarðvík í toppslagnum

Njarðvík er í toppsæti 2. deildar karla.
Njarðvík er í toppsæti 2. deildar karla. Ljósmynd/Heimasíða Njarðvíkur

Njarðvík og Magni skildu jöfn, 1:1, í toppslag 2. deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir leikinn er Njarðvík enn í efsta sæti deildarinnar, nú með 35 stig og Magni kemur þar á eftir með 32 stig, fjórum stigum meira en Huginn og Víðir sem eru í 3. og 4. sæti. 

Lars Óli Jessen kom Magna yfir á 16. mínútu en Krystian Wiktorowicz jafnaði á 91. mínútu og þar við sat. Huginn og Víðir mætast á morgun og verður sigurliðið aðeins einu stigi frá Magna þegar fimm umferðir eru eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert