Jón Rúnar ósáttur við Hafnarfjarðarbæ

Jón Rúnar Halldórsson
Jón Rúnar Halldórsson Mynd/FH

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH vandar Hafnarfjarðarbæ ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifaði á heimasíðu FH í dag. Það hefur staðið lengi til að byggja knatthús í fullri stærð í Kaplakrika en þær framkvæmdir hafa tafist. 

Á undanförnum árum hefur FH byggt tvö minni knatthús sem bærinn kom ekki að og er Jón Rúnar ósáttur við að FH beri stærstan hluta af kostnaðinum í slíkum framkvæmdum. 

Pistill Jóns Rúnars á heimasíðu FH
Góðir FH-ingar

Það má segja að verið sé að bera í bakkafullan lækinn þegar ritað er og rætt um þá dapurlegu staðreynd hver aðstaða knattspyrnudeildar FH er í raun og veru.

Undanfarin ár hefur útlistun á bágri aðstöðu okkar verið sem rauður þráður í skýrslu formanns sem og hefur þar verið talað um að umbætur séu rétt handan við hornið. Því miður hefur ekki neitt af þessu ræst nema það að við sjálf höfum byggt okkur eitt knatthús, þ.e. Dverginn.

Sú staðreynd að FH útvegi um 70% þeirrar æfingaaðstöðu sem við nýtum yfir vetrarmánuðina og að Hafnarfjarðarbær hefur ekki frá því 1999 komið að byggingu aðstöður fyrir knattspyrnudeild FH sýnir í raun þá stöðu sem við erum í.

Það var 2005 sem við tókum Risann í notkun, gerðum leigusamning við Hafnarfjarðarbæ það sem bærinn tók á leigu um 1250 tíma á ári, tíma sem nýta átti til æfinga. Hér var og er um að ræða einfaldan leigusamning þar sem bærinn leigir ákveðinn fjölda tíma gegn leigugjaldi, gjaldi sem stenst og hefur staðist samanburð við leigugjald sambærilegrar aðstöðu. FH byggði húsið og hefur staðið straum af öllum byggingakostnaði og um leið viðhaldi, nú síðast endurnýjum á gervigrasinu. Allar vangaveltur um að bærinn hafi í raun byggt þetta hús eru dauðar og ómerkar.

Við FHingar höfum síðan 2011 kynnt bæjaryfirvöldum á hvern hátt við teljum best að byggja upp þá aðstöðu sem við þurfum, aðstöðu sem er í samræmi við þann fjölda sem iðkar knattspyrnu innan okkar raða og í samræmi við þær framtíðaráætlanir sem við höfum gert. Allir þessar áætlanir ganga út á að fjárhagsleg aðkoma Hafnarfjarðarbæjar sé í raun hlutfallslega lítil, við höfum boðist til þess að eiga 90% í okkar húsum á móti 10% eign bæjarins. Það er með öllu óskiljanlegt að forráðamenn bæjarins hafa hafnað í öllu okkar hugmyndum og hafa í raun ekki komið fram með neinar hugmyndir sem á einhvern hátt geta leyst okkar vanda. Það má velta því fyrir sér hvað yfirvaldi bæjarins gengur til í þessum málum en víst er að ekki eru þau að hugsa um velferð og hagsmuni iðkenda knattspyrnudeildar FH.

Við héldum einn fund í júlí með foreldrum og forráðamönnum iðkenda í yngri flokkum og má segja að upplýsingar um hina raunverulegu stöðu okkar er varðar aðstöðu hafi komið flestum á óvart sem og sú staðreynd að ekki verður haldið áfram að óbreyttu.

Það er ætlun okkar í stjórn knattspyrnudeildar FH að halda stórann kynningarfund um þessi mál mánudaginn 27.ágúst n.k.. Það er okkur mikilvægt að allir þeir sem eiga iðkenda í yngriflokkum knattspyrnudeildar FH mæti þar og taki þátt í á hvern hátt við getum brugðist við þeirri stöðu sem við erum undir.

Við munum ná á næstu dögum birta þær upplýsingar sem við höfum yfir þetta mál þannig að fólk geti verið betur undirbúið undir fundinn.

Með FH kveðju

Jón Rúnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert