Gunnlaugur hættur með ÍA

Gunnlaugur Jónsson er hættur sem þjálfari ÍA.
Gunnlaugur Jónsson er hættur sem þjálfari ÍA. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gunnlaugur Jónsson er hættur sem þjálfari ÍA en hann óskaði sjálfur eftir því að fá að stíga til hliðar. Félagið greindi frá þessu í kvöld og mun Jón Þór Hauksson stýra liðinu út leiktíðina og reyna að bjarga því frá falli úr Pepsi-deild karla. 

Gengi Skagamanna hefur verið afleitt á leiktíðinni og hefur liðið tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og ekki unnið síðan 19. júní síðastliðinn. Skagamenn eru á botni deildarinnar með aðeins tíu stig eftir sextán leiki og aðeins tvo sigra. 

Gunnlaugur tók við ÍA í 1. deild eftir sumarið 2013 og stýrði hann liðinu upp í efstu deild í fyrstu tilraun. ÍA hafnaði í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar árið 2015 og áttunda sæti í fyrra. 

Yfirlýsingu Skagamanna má sjá með að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert