Smáatriði ræður því hver kemst á HM

Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson. mbl.is/Skúli B. Sigurðsson

„Fyrst og fremst er ég stoltur af strákunum,“ sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi eftir 2:0-sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í knattspyrnu. Ísland er jafnt Króatíu í efsta sæti riðilsins þegar tvær umferðir eru óleiknar.

„Það sýnir karakterinn í strákunum hvað þeir koma sterkir í þennan leik. Við vorum allir ósáttir við frammistöðuna gegn Finnum,“ sagði Heimir og bætti við að karakter, skipulag og vinnusemi hefðu lagt grunninn að góðum sigri í kvöld.

Jón Daði æstur í að sanna sig

Spurður að því hvers vegna Jón Daði Böðvarsson hefði byrjað í kvöld sagði Heimir að hann hefði staðið sig vel á æfingum og hefði verið æstur í að sanna sig. „Við vissum að hann myndi ógna bak við varnarlínuna þeirra þannig að Gylfi fengi aðeins meira pláss en í Finnlandi. Þetta voru taktískar ástæður og líkamlegar ástæður,“ sagði Heimir.

Landsliðsþjálfarinn sagði að tími Sverris Inga Ingasonar væri í raun löngu kominn með landsliðinu en Sverrir byrjaði í kvöld á kostnað Kára Árnasonar. „Hans tími var kominn fyrir löngu síðan en Kári og Raggi [Ragnar Sigurðsson] hafa spilað svo ofboðslega vel. Hann hefur sjálfur sagt að hann er framtíðarmiðvörður og hefur ekkert verið að stressa sig á þessu. Síðasti leikur sat í miðvörðunum okkar og við töldum að þetta væri rétti tíminn.“

Vorum meðvitaðir um þeirra styrkleika

Úkraínska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti en Heimir sagði að lagt hefði verið upp með að byrja af krafti. „Það fer ekki allt eins og maður ætlar sér,“ sagði Heimir og glotti.

Planið var að falla aðeins aftur og reyna að nýta svæðið aðeins bak við þá. Þeir byrjuðu betur og það kom okkur ekki á óvart. Við vorum meðvitaðir um þeirra styrkleika og vissum að þetta yrði ekki leikur margra færa eða marka,“ sagði þjálfarinn og bætti við að það hafi átt að passa upp á að þeir myndu ekki skora.

Heimir sagði að Emil Hallfreðsson fengi oft ekki það hrós sem hann ætti skilið en hann lék sérstaklega vel í seinni hálfleik í kvöld. „Við vitum að þeir eru með vængmenn sem leita inn á miðju. Við héldum okkur við tvo sitjandi miðjumenn og hafandi séð þetta þá var það hárrétt ákvörðun,“ sagði Heimir en Aron Einar Gunnarsson og Emil voru aftarlega á miðjunni, með Gylfa Sigurðsson þar fyrir framan.

Ræðst í lokaleiknum

Ég hef sagt það frá fyrsta blaðamannafundi að riðilinn mun ráðast í lokaleik,“ sagði Heimir en Ísland, Króatía, Úkraína og Tyrkland eiga öll möguleika á því að komast á HM í Rússlandi þegar tvær umferðir eru óleiknar.

Það sem mun ráða því hverjir komast áfram og hverjir verða í öðru sæti eru smáatriði. Smáatriði í síðasta leik ræður því hver fer á HM úr þessum riðli og hverjir verða í öðru sæti. Það er mikilvægt að við séum með okkar smáatriði á hreinu.“

Heimir sagði aðspurður að hann hefði ekki rætt við Lars Lagerbäck eftir að hans menn í Noregi töpuðu 6:0 fyrir Þýskalandi í undankeppni HM. Hann var þá spurður að því hvort Lars hefði leitað meira til hans upp á síðkastið en öfugt. „Það hefur verið þannig frá upphafi,“ sagði Heimir og horfði alvarlegur fram í salinn. Örfáum sekúndum síðar skellihló hann og sagðist vera að grínast.

Ef við kæmumst á lokakeppni HM myndi ég segja að það væri mesta afrek í íslenskri knattspyrnusögu. Það myndi ekki bara skipta máli fjárhagslega heldur líka sálfræðilega. Það væri stórt og mikið afrek fyrir knattspyrnusambandið,“ sagði Heimir en næsti leikur Íslands í undankeppninni er útileikur gegn Tyrklandi 6. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert