Ísland verður í FIFA 18

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar verða í FIFA 18.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar verða í FIFA 18. mbl.is/Golli

Samningar hafa náðst á milli EA SPORTS og KSÍ um að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verði með í FIFA 18 sem er einn vinsælasti tölvuleikur í heimi.

Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að þetta séu góðar fréttir fyrir þá tugi þúsunda spilara sem að spila leikinn hér á landi og auðvitað hina fjölmörgu FIFA spilara um allan heim sem hafa hrifist af leik og árangri liðsins undanfarin misseri.

Sena, sem gefur leikinn út á Íslandi, og EA SPORTS hafa af þessu tilefni látið útbúa sérstaka kápu utan um leikinn sem skartar íslensku landsliðstreyjunni. Þessi útgáfa leiksins verður aðeins fáanleg í verslunum á Íslandi. Útgáfudagur FIFA 18 er 29. september.

Guðni Bergsson formaður KSÍ er mjög ánægður með að íslenska landsliðið verði nú í þessum vinsæla leik.

„Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og tel þetta vera góð tíðindi fyrir alla þá sem spila leikinn hér á landi og í raun um allan heim. Mér finnst þetta jákvætt markaðslega fyrir íslenskan fótbolta, gaman fyrir okkar stuðningsmenn og einnig leikmennina sjálfa,“ segir Guðni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert