Danski sóknarmaðurinn André Bjerregaard er fótbrotinn en Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport, greinir frá þessu á twittersíðu sinni.
Bjerregaard fór meiddur af velli eftir aðeins 16 mínútna leik í leiknum gegn KA-mönnum á sunnudaginn eftir tæklingu frá Aleksandar Trninic.
Reynast þessar fréttir réttar spilar Daninn ekki meira með KR-ingum á tímabilinu en hann hefur skorað 4 mörk í 10 deildarleikjum með vesturbæjarliðinu.