Markalaust á rennblautum Hásteinsvelli

Frá viðureign ÍBV og Fylkis fyrr í sumar.
Frá viðureign ÍBV og Fylkis fyrr í sumar. mbl.is/Golli

ÍBV og Fylkir gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leiknum í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í Eyjum í dag.

Leikurinn fór fram á rennandi blautum Hásteinsvelli í Eyjum og tókst leikmönnum liðanna ekki að finna netmöskvana þrátt fyrir ágæt færi á báða bóga.

ÍBV er 4. sæti deildarinnar með 32 stig en Fylkir er með 9 stig í næst neðsta sæti og fallinn úr deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert