Sýnir hvernig sumarið var hjá okkur

ÍR tapaði fyrir Fylki í dag.
ÍR tapaði fyrir Fylki í dag. Ljósmynd/Kristinn Magnússon

„Við liggjum til baka, það er okkar taktík svo Fylkismenn lágu meira á okkur,“  sagði Arnar Þór Valsson þjálfari ÍR eftir 2:1 tap fyrir Fylki í Árbænum í dag þegar efstu deild karla í knattspyrnu – Inkasso-deildinni- lauk en sigurmark Fylkis kom í blálokin.

„Okkar taktík gekk vel upp en gerist þetta í lokin, eitthvað sem sýnir hvernig sumarið hefur verið hjá okkur þegar við fáum á okkur mark á lokasekúndunum.  Það er ekki hægt að segja að Fylkir hafi ekki átt þetta skilið, svona er þetta bara.“

ÍR var spáð af þjálfurum, fyrirliðum og forráðamönnum að lenda í 10. Sæti og sú varð raunin  en Breiðhyltingar höfðu níu stigum betur en Leiknir frá Fáskrúðsfirði, sem féll um deild ásamt Gróttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert