Arnar Már áfram með Skagamönnum

Arnar Már Guðjónsson í leik með ÍA gegn Leikni Reykjavík …
Arnar Már Guðjónsson í leik með ÍA gegn Leikni Reykjavík í bikarkeppninni í sumar. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Arnar Már Guðjónsson, miðjumaður í knattspyrnuliði ÍA, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið og er samningsbundinn því til ársins 2019.

Arnar er þrítugur að aldri og er uppalinn hjá ÍA. Hann hefur spilað 165 leiki með liðinu og hefur í þeim skorað 31 mark. Þar af eru 99 leikir og 15 mörk í efstu deild. Á þessu tímabili hefur hann komið við sögu í 20 leikjum liðsins í Pepsi-deildinni og skorað í þeim 4 mörk en Skagamenn eru neðsta sæti deildarinnar og eru fallnir.

„Ég hef mikla trú á þeim gríðarlega metnaði og þeirri skýru stefnu sem stjórn KFÍA vinnur eftir þar sem ungir leikmenn fá tækifæri við hliðina á reyndari leikmönnum. Við erum með mjög efnilegan leikmannahóp sem hefur alla burði til að fara beint upp í Pepsi á ný og það er frábær stemning og vilji í hópnum til að gera enn betur.  Ég vil sjálfur halda áfram að taka þátt í framtíðarsigrum með mínum bestu vinum í ÍA. Það var því auðveld ákvörðun að skrifa undir nýjan samning með allt þetta í huga,“ segir Arnar Már á vef ÍA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert