Förum í alla leiki til að vinna

Heimir Hallgrímsson
Heimir Hallgrímsson AFP

„Við förum í alla leiki með það að markmiði að vinna og það er engin breyting á því fyrir leikinn á móti Tyrkjum,“ sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í Eskisehir í morgun en Íslendingar mæta Tyrkjum í undankeppni HM annað kvöld.

„Þó svo að jafntefli væru ekki vond úrslit þá stefnum við að sigri og lykilinn að því að vinna leikinn er skipulagið verði gott hjá okkur. Við vitum að Tyrkirnir eru með gott lið og við þurfum að skila mjög góðum leik til að vinna þá,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert