Ólafur Þór framlengir við Stjörnuna

Ólafur Þór Guðbjörnsson verður áfram við Stjörn hjá Stjörnunni.
Ólafur Þór Guðbjörnsson verður áfram við Stjörn hjá Stjörnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólafur Þór Guðbjörnsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár og mun hann halda áfram að þjálfa kvennalið félagsins. Sport.is greindi frá þessu í gær. 

„Það er okkur mikið ánægjuefni að hafa tryggt okkur starfskrafta Ólafs Þórs næstu tvö árin,“ sagði Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs kvenna. 

„Þar til í ár hefur Stjarnan unnið annað hvort Íslandsmeistaratitil eða bikarmeistaratitil, eða báða titla, á hverju ári sem Ólafur Þór hefur þjálfað liðið og í ár varð Stjarnan fyrst íslenskra liða til að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir núverandi fyrirkomulagi. Þá hefur hann hlúð vel að ungum og efnilegum leikmönnum sem leika munu lykilhlutverk í Stjörnuliðinu á komandi árum,“ bætti Einar Páll við.„Stjarnan stefnir að sjálfsögðu að því að endurheimta alla titla í Garðabæinn og það er gott til þess að vita að við höfum tryggt að rétti skipstjórinn haldi um stýrið á þeirri siglingu,“ sagði Einar Páll að lokum í samtali við sport.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert