Blikar farnir að semja fyrir næsta sumar

Fjolla Shala á ferðinni í leik gegn Val.
Fjolla Shala á ferðinni í leik gegn Val. mbl.is/Árni Sæberg

Fjolla Shala hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks og verður því áfram í Kópavoginum næstu þrjú árin.

Fjolla hefur verið hjá Blikum frá árinu 2011 og hefur spilað 120 leiki fyrir liðið. Hún missti hins vegar af öllu síðasta keppnistímabili eftir að hafa slitið krossband í hné fyrir ári síðan.

Fjolla á 19 U19 landsleiki fyrir Ísland og 12 U17 leiki. Að auki á hún 51 leik með Fylki í meistaraflokki og 6 leiki fyrir Leikni Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert