Hafsteinn Briem hefur yfirgefið herbúðir bikarmeistara ÍBV í knattspyrnu. Hann staðfesti þetta á Instagram-síðu sinni í dag.
Hafsteinn er 26 ára gamall og hefur verið í lykilhlutverki hjá ÍBV síðan hann kom frá Fram fyrir sumarið 2015. Hann fagnaði sem fyrr segir bikarmeistaratitli með félaginu í sumar.
„Mig langar að þakka Eyjamönnum fyrir minn tíma þar. Mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri á að spila fyrir jafn einstakt félag og ÍBV er. Framtíðin er björt í Eyjum,“ skrifar Hafsteinn við færsluna á Instagram.