Stjarnan bætir við framherjasveitina

Þorsteinn Már Ragnarsson handsalar samning sinn við Stjörnuna.
Þorsteinn Már Ragnarsson handsalar samning sinn við Stjörnuna. Ljósmynd/twitter-síða Stjörnunnar

Sóknarmaðurinn Þorsteinn Már Ragnarsson hefur gengið til liðs við Stjörnuna frá Víkingi Ólafsvík. Þorsteinn Már mun leika með Stjörnunni sem hafnaði í öðru sæti efstu deildar karla í knattspyrnu á síðustu leiktíð. 

Þorsteinn Már hefur auk þess að leika með Víkingi Ólafsvík leikið með Snæfelli árin 2006 og 2008 og KR árin 2012 - 2015, en hann hefur skorað 57 mörk 231 leik fyrir fyrrgreind lið.

Þorsteinn Már varð Íslandsmeistari með KR árið 2013 og bikarmeistari með Vesturbæjarliðinu árin 2012 og 2014. Þorsteinn Már var fyrirliði Víkings Ólafsvíkur sem féll úr efstu deild á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert